Stefán Arnarson og Hrafnhildur Skúladóttir þjálfarar U-20 ára landsliðs kvenna hafa valið þá 16 leikmenn sem taka þátt á HM í Ungverjalandi í sumar. Þau völdu Söndru Erlingsdóttur frá ÍBV en Sandra var ein af burðarásum ÍBV í vetur.
Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á HM með því að ná 2. sæti í undanriðli sem haldinn var í Vestmannaeyjum í lok mars. Þar unnu stelpurnar okkar góða sigra á Litháen og Makedóníu en töpuðu naumlega fyrir Þýskalandi.
Heimsmeistaramótið fer fram í Debrecan í austurhluta Ungverjalands í byrjun júlí. Stelpurnar okkar eru í riðli með Rússlandi, S-Kóreu, Slóveníu, Kína og Chile í mótinu. Fjögur efstu liðin í riðlinum komast í 16-liða úrslit.
ÍBV óskar Söndru innilega til hamingju með þennan árangur